Umboð hafa tíðkast lengi í pappírsheimum. Helstu ástæður geta verið fjarvera, tímaskortur, fötlun/veikindi o.fl. Sama þörf er þegar erindum er sinnt rafrænt. Mikilvægt er að fólk afhendi ekki öðrum rafræn auðkenni sín. Þess vegna er þörf á rafrænum umboðum.
Leiðbeiningar til að veita umboð er hægt að nálgast hér eða fyrir neðan.
Fyrst þarf að fara inná síðuna https://innskraning.island.is/?id=minarsidur til að skrá sig inn á mínar síður hjá island.is.
Þegar búið er að skrá sig inn þá skal opna síðuna "Umboðskerfi" undir "Minn aðgangur" flipanum á valmyndinni vinstra megin á síðunni.
Á síðunni er síðan hægt að veita umboð.
Til að veita umboð fyllir þú út eyðublaðið sem birtist.
Kennitala: Umboðsveitandi slær inn kennitölu þess sem hann er að veita umboðið.
Nafn: Nafn umboðshafa birtist sjálfkrafa þegar kennitalan hefur verið slegin inn.
Hér gefst þér kostur að veita umboð fyrir þig sjálfan eða fyrirtæki/stofnun sem þú hefur prókúru fyrir.
Ef þú vilt veita umboð fyrir þig sjálfan, hakar þú í efri reitinn, þar sem nafnið þitt stendur.
Ef þú vil veita umboð fyrir fyrirtæki eða stofnun, hakar þú í neðri reitinn ("Fyrirtæki/stofnun").
Fyrirtækin og stofnanir sem þú hefur prókrúru fyrir birtast þá í listanum til hliðar þegar smellt er á "Leita í fyrirtækjaskrá".
Þú velur þá fyrirtæki eða stofnun úr listanum sem þú vilt veita umboð fyrir.
Eftir kennitala og nafn reitirnir eru fylltir, smellir þú á Áfram hnappinn.
Flokkar: Hér velur þú Allir.
Þjónusta: Hér velur þú Kaupfélag Skagfirðinga - vidskipti.ks.is, ekki dev-vidskipti.ks.is eða stage - vidskipti.ks.is
Umboðshlutverk: Hér skal hakað í hlutverkið Sjá viðskiptahreyfingar.
Svo smellir þú á Áfram hnappinn.
Gildir frá/til: Dagsetning er valin með því að smella á tákn fyrir dagatal fyrir aftan reitinn.
Þegar þú ert búinn að setja inn viðeigandi dagsetningar smellir þú á Vista hanppinn.
Þá getur þú skoðað allar upplýsingar sem þú var að fylla inn.
Ef allt er í lagi, smellir þú á Staðfesta hnappinn til þess að veita umboðið.
Ef smellt er á "Hefur umboð fyrir" sést yfirlit yfir þau umboð sem þú hefur umboð fyrir.
Ef engin umboð hafa verið veitt er listinn tómur.
Ef smellt er á "Veitt umboð" sést yfirlit yfir þau umboð sem hafa verið veitt.
Ef engin umboð hafa verið veitt er listinn tómur.